spara og spara

Já núna í kreppunni þýðir ekkert annað en að spara. Og hef ég ákveðið að stíga skref í þá átt með að taka slátur með henni Kristínu í dag. Ja þetta verður sérstaklega skemmtileg slátursgerð því í lokin verður maður orðin óökufær án þess þó að það bitni á gæði sláturskeppanna. Svo er næsta skref í sparnaði að reyna að gera bjúgu fyrir jól en eins og allir vita sem hafa smakkað þann unað eru svona heimagerð bjúgu dásamleg og þá er ekki bara að tala um lögunina! Síðan er auðvitað meira á dagskrá hjá frú sparsöm t.d. datt mér í hug að hætta bara alveg að nota bílinn en þá kæmist ég ekki í vinnuna eða að skutla krökkunum í tómstundir svo það datt upp fyrir strax. Svo ég ákvað að fara bara að baka einstaka sinnum til heimilis til að spara kökukaupin. En þið megið ekki halda að ég sé að breytast í frú Stewart eða frú Crooker því það kemur bara fyrir einu sinni á lífsleiðinni og ég er búin með þann pakka fyrir löngu síðan. Svo er ein hugmyndin enn og það er að slökkva ljósið og á sjónvarpinu og allt það þegar maður er ekki að nota það. Þetta er reyndar stolið ráð frá syninum sem er orðin meðvirkur í kreppuhugleiðingum foreldranna. Ja svo gæti maður auðvitað spara með því að fara sjaldnar á netið en þá gæti frúin ekki sent verkefni í skólann. Talandi um skóla. Þá barst það í tal við börnin í leikskólanum um daginn að ég væri að læra. Þau skellihlógu öll með tölu og sögðu að ég væri sko alltof gömul til að vera í grunnskóla! Góður bunktur þar.

Ja hérna hér og hana nú!

Já það er sannarleg margt að gerast í lífi Íslendinga þessa dagana. Ekki bara það að krónan sé látin heldur er bara sjálf náttúran að nötra og farin að renna fram í alls konar fljótum, barasta! En eins og ég skrifaði sem comment á bloggið hennar elsku Siggu minnar í Norge þá verðum við bara að slaka á og fá okkur einn öl. Einmitt flottar auglýsingarnar sem eru í sjónvarpinu þessa dagana, þessar með að muna eftir öllu sem gleður mann og er ókeypis. Frábært framtak þar á ferð.  En stóðréttahelgin er t.d. löngu búin og var hún óvenjuleg þetta árið. Ekkert gert á föstudagskvöldið, Jörfafrúin var fárveik. Svo á laugardeginum fór frúin seint og um síðir út í rétt. Skrópaði að vinna í skálanum og er stolt af því. Þoli það nefnilega alls ekki. Alla vega Sæan mín kom að venju enda árviss atburður. Svo var rekið heim og það var bara hellings skemmtilegt,drukkið auðvitað og svona. Síðan skutlast í Þórukotið að sækja bílinn því allt vínið var í honum og því má sko ekki sleppa. Já svo brunuðum við Sæa í Nípukot (þó ekki með s í nafninu!) og skipuðu aumingja Dolla hægri og vinstri alveg þangað til við vorum ánægðar. Já það er ekki tekið út með sældinni að vera við og því kynntist Dolli greyið. Svo var farið heim, við sóttar, punt fyrir afmæli og svo farið í afmæli. Þetta var afmælisveislan hennar Anítu á Hvammstanga. En afmælið var með góðum veitingum og fríu búsi að eins og hver gat í sig látið. Og þá erum við loksins komin að óvenjulegu heitunum. Því ár hvert er nefnilega farið í Þórukotið í dúndurpartý. En þetta var svo sem allt í lagi, um að gera að breyta til og víkka stóðréttasjóndeildarhringinn út. En mikið mikið hlakka ég til að ári að hafa venjulega stóðréttahelgi, með föstudagsdjammi og laugardagsdjammi á sínum stað. Og bara svo þið öll vitið það þá mun ég aldrei aftur sleppa stóðréttadjamminu því helgin var ekki eins og hún átti að vera þó gaman hafi verið. Ég endaði svo eftir helgina með að verða lasin og missa röddina algjörlega. Fékk svo kvefpest ofaní það og nú bryð ég parkódín forte og penselín töflur og þegar það er afstaðið spreyja ég í nefið á mér kraftmiklu nefspreyji. Hóst hóst og sniff sniff.

Herramaðurinn dularfulli.

Enn leynast herramenn konur! Já ég er sko búin að sannreyna það að það eru til svona herramenn af gamla skólanum. Saga dagsins hljóðar svo. Ég þurfti að bruna út á Vatnsnes á æskustöðvarnar. Ég var að mér fannst bara ekkert fín enda stóð það alls ekki til heldur. Klæðnaður sem var til sýnis saman stóð af lopapeysu, pilsi, ullarsokkum og forláta innfluttum Crocks klossum og ekkert í svona litasetteringu. Hárið að hætti Stellu og ómálað andlit með tilheyrandi stress og þreytumerkjum. Það gustaði af frúnni enda var hún að flýta sér því verkefni dagsins voru minnst 1001 og öll óleyst. Alla vega tilgangur ferðar þessar var að sækja sement í stærðar fötu. Fór ég af stað með ekkert nema leiðbeiningar um hvar finna skildi þetta blessaða sement jú og fötuna góðu. Ég ók í fússi út Vatnsnesið og þegar ég kom að bæjarhliðinu á fallegu æskustöðvunum sá ég hvar herramaðurinn af gamla skólanum beið mín. Ja hann beið mín kannski ekki alveg tilbúinn við hliðið en ég kallaði bara hátt og ákveðið á hann að koma sér niður að hliði og opna fyrir bestustu litlu frænku í öllum heiminum. Hemmm ég held að hann hafi orðið pínu skelkaður vegna bræðitóns í rödd bestustu litlu frænkunnar og að sjá hárlufsur Jörfafrúarinnar út um gluggann. En herramaðurinn kom gangandi sæll og glaður og opnaði fyrir mér hliðið, settist inn í bíl hjá mér og við spjölluðum saman á leið að sementgeymslustaðnum leynilega. Hann hreinlega krafðist þess herramannslega að fá að aðstoða mig með fötuna og sementið. Hann sagði að ég væri alltof fín fyrir svona vinnu. Þegar ég rétti honum svo litla sandfötu til að moka upp úr pokanum og ofan í stóra gímaldsfötuna þá brosti hann herramannslega og sagði að ílátið væri einstaklega vel valið hjá mér. Ég ákvað að þetta væri hrós en ekki neitt annað. Nú til að halda herramanninum við efnið lét ég hann svo bera þungu stóru fötuna í skottið á bílnum mínum. Ekki nóg með það. Hann kom með mér að hliðinu og lokaði því svo á eftir mér þegar ég fór og allt þetta gerði hann með bros á vör, þó ekki svona aulaglotti heldur alvöru herramannabrosi.

Æðisleg sýning og pirringur um leið

Við vinkonurnar fórum til Reykjarvíkur síðasta laugardagskvöld. Ferðinni var heitið á Mamma Mia, Sing Along. Þetta var hreinlega skemmtilegasta bíóferð sem ég hef upplifað hingað til. Allir stóðu upp og sungu með já og dilluðu sér í takt við yndislega Abbatónlistina. Mæli sko með þessari sýningu. Er ég búin að ákveð að fara með krakkana mína á þessa sýningu því þetta er svo sannarlega fyrir fjölskyldu og vini. En við vinkonurnar fórum líka út að borða og það áður en sýningin byrjaði. Fórum á lítinn veitingastað á Laugarvegi sem ég man ekki hvað heitir og lýsi hér með eftir nafninu sem er týnt úr huga mér. En maturinn þar er mjög góður og ódýr. Virkilega smart staður og flottur. Pínu bara eins og að vera í útlöndum eitthvað, ha. Maður þarf að tala meira að segja ensku við þjónana og það pirraði mig mjög mikið. Ég tek það fram að stórfjölskyldan mín er mjög alþjóðleg og makar bræðra minna eru frá fleiri löndum en Íslandi. Ég elska það og er virkilega hrifin af ólíkum menningum. Ólst upp við fjölmenningu og mikið að erlendu fólki var oft á mínu æskuheimili sem víkkar sjóndeildarhringinn er bara gott fyrir mann. Og svo dæmi sé tekið þá hlusta ég mikið á svona alþjóðlega tónlist t.d. eins og frá Suður Ameríku á eða Frakklandi. En þegar maður fer út að borða á Íslandi þá finnst mér að þjónarnir ættu allavega að REYNA að byrja á því að tala íslensku þó svo að skipt verði yfir í ensku eftir smá stund.  Ég veit ekki með aðra en mér finnst að við Íslendingar vera of fljótir að byrja bara að tala ensku eins og íslenskan okkar sé annars flokks. Það pirrar mig.

Fjólublái hatturinn og konur á ólíkum aldri með sjálfsmat.

3 ára:
Lítur í spegil og sér Drottningu!

8 ára:
Lítur í spegil og sér sjálfa sig sem Öskubusku/Þyrnirós!

15 ára:
Lítur í spegil og sér sjálfa sig sem
Öskubusku/Þyrnirós/Klappstíru eða ef hún er á túr sér: Feit/Bólur/LJÓT (Mamma, ég fer ekki í skólann svona!)

20 ára:
Lítur í spegil og sér: of feit/of mjó, of lítil/of stór, of
slétt hár/of krullað; en ákveður að þetta verði að duga.

30 ára:
Lítur í spegil og sér: of feit/of mjó, of lítil/of stór, of
slétt hár/of krullað; en segir að hún hafi ekki tíma til að laga það og
lætur það duga.

40 ára:
Lítur í spegil og sér: of feit/of mjó, of lítil/of stór, of
slétt hár/of krullað; en segir ;Ég er þó allavega hrein; og lætur það
duga.

50 ára:
Lítur í spegil og sér ;Ég er; og gerir það sem hana langar til.

60 ára:
Lítur í spegil og minnir sjálfa sig á það er til fólk á hennar
aldri sem getur ekki einu sinni séð sig í spegli lengur. Fer út og
sigrar heiminn.

70 ára: Lítur á sjálfa sig í spegli, sér visku, hlátur og möguleika.
Fer út og nýtur lífsins.

80 ára:
Hefur ekki fyrir því að líta í spegil. Setur bara upp fjólubláan
hatt, fer út og hefur gaman af lífinu.

Kannski ættum við allar að setja upp fjólubláa hattinn fyrr.

Hættulegt hættulegt

 Ég las eina grein hér um daginn að alkahól væri hættulegt!!!!!!!!!!

 Ég varð skíthrædd!!!!!!!

 Svo að ég ákvað að hætta!!!

 Frá og með morgundeginum er ég hætt að lesa!!!!!!!!!!!


Nýju starfsmannareglurnar

Uppfærð handbók starfsmannsins.
 
Reglur þessar taka nú þegar gildi.
 
Starfsmannafatnaður:
Það er ætlast til þess að þú komir klædd/ur  í vinnuna þína í samræmi við launatekjur þínar.
Ef þú mætir klædd/ur í 40 þúsund króna Prada strigaskóm eða er með 80 þúsund króna Gucci handtösku, gerum við ráð fyrir að þú sért á nógu góðum launum og þurfir alls enga
launahækkun.  Ef þú kemur fátæklega klædd/ur biðjum við þig að fara betur með peningana þína, svo þú getur keypt þér betri/fallegri föt.  Ef þú aftur á móti ert einhvers staðar þarna á milli ert þú sennilega á réttum stað og þarft enga launahækkun.
 
Veikindadagar:
Við tökum ekki lengur á móti læknisvottorðum. Ef þú getur farið til læknis og fengið hjá honum vottorð, geturðu alveg eins mætt í vinnu.
 
Aðgerð:
Uppskurðir/aðgerðir eru nú bannaðar. Svo lengi sem þú ert starfsmaður hérna, þarftu á öllum þínum líffærum að halda. Og ættir þess vegna alls ekki að láta fjarlægja neitt. Þú varst ráðinn með öll líffæri og ef það breytist á einhvern hátt er það brot á ráðningasamningi þínum.
 
Persónulegt leyfi fyrir utan orlofs.
Hvern launþegi fær 104 daga á ári til að sinna einkaerindum. Þeir dagar eru kallaðir laugardagar og sunnudagar.
 
Orlofsdagar:
Allir starfsmenn eiga að taka orlofsdagana síma á sama tíma á hverju ári. Þeir dagar eru
24 desember (e.hádegi)25 desember, 26 desember,  31 desember (e.hádegi) 1 janúar, skírdagur, föstudagurinn langi, annar í páskum, og frídagur verslunarmanna.  Og eftirtaldir dagar ef þeir bera upp á virkan dag.  1 maí og 17 júní.
 
Fjarvera vegna jarðarfara:
Það er ekki til nein afsökun fyrir því ef þú mætir ekki í vinnu. Það er ekkert sem þú getur heldur gert fyrir látna vini, ættingja eða samstarfsfólk. Reyna ætti af öllum mætti að láta aðra sjá um og mæta í jarðaför viðkomandi. Í sérstökum undantekningar tilvikum þar sem starfsmaður verður að mæta, skal jarðaförin tímasett seinnipart dags. Okkur er sönn ánægja að leyfa viðkomandi starfsmanni að vinna matartímann sinn upp í þær stundir sem hann yrði væntanlega fjarverandi.
 
Fjarvera vegna eigin dauða:
Þetta er líklega eina fjarveran sem við tökum til greina. Samt sem áður er ætlast til þess að starfsmaður gefi okkur alla vega tveggja vikna fyrirvara svo hægt sé að aðlaga og taka nýjan starfskraft inn í þitt starf.
 
W.C ferðir:
Allt of mikill tími fer í salernisferðir hjá starfsmönnum. Í framtíðinni  verður þannig hátturinn á að að nota stafrófið sem hjálpartæki. T.d nöfn sem byrja á "A" eiga að nota salernið frá 08:00-08:20, nöfn sem byrja á "B" frá 08:20-08:40 og svo frv. Ef svo óheppilega vill til að þú einhverra hluta vegna kemst ekki á salernið á umsömdum tíma verður þú að bíða næsta dag. Í algjörum neyðartilfellum, mega starfsmenn þó skipta út sínum tíma . Þá verður það að vera skriflegt og undirskrifað af ykkar verkstjórum.
Hámarkstími eru 3 mín, og ef þú ferð yfir þann tíma mun hringing fara í gang, klósettrúllan rúllast upp til baka, dyrnar verða opnaðar og af þér verður tekin mynd. Hún verður síðan sett upp á auglýsingatöflu öðrum til varnaðar.
 
 
Hádegisverðarhlé:
Mjög grannt fólk fá 30 mínútna hádegisverðarhlé, þar sem það verður að borða meira og líta betur út. Fólk í kjörþyngd fær 15 mínútna hádegisverðarhlé, og fær tækifæri á að borða sinn mat til að viðhalda góðri líkamsþyngd. Feitt fólk fær 5 mínútna hádegisverðarhlé,  sem er fullnægur tími til að drekka Herbalife og taka inn megrunartöfluna sína.
 
Svo þökkum við ykkur fyrir tryggð við stofnunina. Við erum til staðar og reynum að skapa skemmtilegan og jákvæðan starfsmanna – móral. Þess vegna óskum við eftir því að allar spurningar, athugasemdir, áhyggjur, kvartanir, ásakanir, illska og leiðindi  verði beint eitthvað annað.

Vetur konungur.

Nú er veturinn að koma sagði ein góð vinkona mín. Ég finn það á mér sagði hún svo. En þá lagði maðurinn hennar orð í belg og bar fram tilkynningu eftir ákveðin bónda í sveitinni, þó ekki minni sveit, að fyrst það er búið að snjóa í Þrælsfellið þá verður gott fram að áramótum. Ja ég vona það allavega því ég er ekki hrifin af hálku og snjó og kulda og vindi og öllu þessu sem fylgir. Eina jákvæða er myrkrið og þá er hægt að kveikja á kertum og hafa það huggulegt. Aaaahhhhhh bara notalegt.

Hugmyndaflæði

Langar að segja ykkur frá hugmyndaflæði okkar Ölmu. Við erum oft að hugsa upp eitthvað brilljant. Nýjasta dæmið eru gjafasteinar. Það eru sem sagt steinar sem við týnum sjálfar og seljum svo t.d. á e-bay. Bara svona til að athuga hvort svona handtýndir steinar frá Íslandi virki á útlendinga. En því miður þegar við vorum alveg við að ýta á takkann sem sagði að tilraunaverslunarsíðan okkar væru stofnuð þá kom upp staðreyndarmelding um að við yrðum að borga fyrir bullið okkar. Við sem vorum búnar að gera svo fína tilraunasíðu með myndum og háfleygum lýsingum um hvernig þessi gjafasteinn hafi verið handtíndur við Íslenska strönd og algjörlega stútfullur af orku og hamingju. Meira segja var búið að líma á steininn fágæta og vatnslitaða mynd eftir meistara Ölmu. Á meðan þessum lýsingum stóð hlógum við mikið og hættum varla að hlægja fyrr en e-bay heimtaði borgun fyrir ómakið. Usss svo við hættum við söluna en mikið langar mann nú til að borga þetta lítilræði, sem mér reiknast til að sé um 400 krónur íslenskar, bara til að sjá hvort einhverjir muni nú borga fyrir gjafastein frá Íslandi.

Dagbókarfærsla kafteinsins.

Jæja gott fólk. Þá er runnið upp skeið bloggsins. Þar sem ég nenni ekki að fara að læra eða skutlast til Hvammstanga í annars bráðnauðsynlegum erindum þá ákvað ég bara að blogga. Margt hefur nú bara gerst í sumar og skal nú upptalið það helsta. Læt það ógert að minnast á hluti eins og að ég náði að taka til og henda húsdraugnum út, endurhanna hjónaherbergið og að drepa húsflugur með afar öflugum rafmagnsspaða. Því jú ég er að reyna að halda í friðelskandilúkkið sem hefur tekið mig nokkurn tíma að vinna í. Nóg af bullinu á samt eftir að koma í vetur. En hvað hefur á daga Jörfafrúarinnar drifið. Jú frúin vann á við aðhlynningu á sjúkrahúsinu í sumar og líkaði vel. Já mér fannst starfið gefandi og oft á tímum skemmtilegt. Auðvitað var vibbi inn á milli en það er bara áskorun fyrir konu sem ólgar yfir mannlegum mistökum. Bunki þar í reynslubankann sjáiði til. Svo var haldið á allavegana mót, fótboltamót, ættarmót og ég veit bara ekki hvað. T.d. á ættarmótinu var ekkispáð rigningu en hvað gerðist. Jú það rigndi og við í tjöldum. Krakkarnir ekki með stigvél og regnstakk. Ég tala nú ekki um hárið sem var aldrei til friðs og því til lítils að gellast eitthvað. En fyrir utan rigningu og vosbúð skemmtu allir sér dæmalaust vel. Komumst að því að dóttirin á tvífara í ættinni sem hvað eftir annað var ruglast á. Svo kom að því að sólhúsið var reist, mörgum vininum til hopps og hí. Það kom sem sagt maður til að setja það upp og hann var hreinlega enga stund við þetta aleinn maðurinn. En það er heilmikið verk eftir inni sem verður reynt að klára fyrir haustið 2009. Hlakka mikið til að fara að hreiðra um mig í heitum potti á köldum vetrarkvöldum og með snarkandi eld í kamínunni góðu. Ekki spillir þá að hafa bjór í annarri og m....... í hinni.  En svo gerðist það 4. ágúst að eiginmaðurinn fótbraut sig. Sennilega með vilja gert til að fá loksins 6 -8 vikna sumarfrí. Svo búin að sjá í gegnum þetta hjá honum. Hann fótbrotnaði við það að eltast við kú í fjósinu á fjósatíma. Hvers vegna gæti einhver spurt sig var hann að eltast við kúna í stað þess að mjólka. Ja málið er að hún slapp í gegn og hann var að reka hana til baka. Stóð meira í annan fótinn og kúin sletti til einni af sínum fráu fótum og beint í húsbóndann. Ja svona getur farið þegar slett er úr klaufunum krakkar mínir! Þetta varð til þess að ferðir til Akureyrar hafa aldrei verið tíðari. Svo fór hann í margar tegundir af gifsum og stígvélum. Eða eins og sonur minn kallar stígvélið, Star wars skórinn.  Svo var nú eitthvað meira brallað. Stóðið var rekið á heiðina einn góðan dag í fylgd fullorðinna og barna. Við Sæa og Sigga tókum okkar tíma í þetta og stoppuðum oft. T.d. stoppuðum við á sveitakrá og svo á næsta bæ og á næsta bæ. Þetta varð auðvitað til þess að við urðum langsíðastar. Auðvitað var Bakkus með í för og ég drakk heldur of mikið. Sem gerist reyndar alls ekki oft. Reyni yfirleitt að passa mig. Nema hvað ég varð víst ofurölvi einni ungri konu til mikillar skemmtunnar. Tek það fram að hún er ekki í okkar vinahóp og þekkjum við hana bara ekkert. Ekki var það nú nóg fyrir hana að hlakka yfir minni ölvun heldur varð hún að skemmta sér yfir annarra kvenna ölvun líka. Hmmmm skyldi þessi ákveðna unga kona aldrei hafa drukkið meira en einn bjór, alltaf passað sig og aldrei drukkið of mikið. Veit það ekki og langar ekkert til að vita það. Ýmislegt fleira smálegt var nú líka brallað eins og að hjálpa ekki Brynju að flytja af því að Það var allt búið þegar ég kom á staðinn. Að maður tali um stórverslunarferðina suður fyrir skólabyrjun. Það fuku margir 100 þúsund kallar í þeirri ferð og var veskið ótrúlega þunnt eftir þá ferð.  Nú hef ég tínt til svona það helsta en sleppi smámunum eins og aðhalds- og megrunarfréttum frúarinnar. Reyndar langar mig til að minnast á það þegar ég var að vinna 1. verkefnið í íþr. 113 í fjarnáminu. Átti að fylla út heilsufarsskýrslu í bland við áhuga á íþróttum. Þeir sem þekkja mig vel vita að ég er af stofni sófadýra með ofnæmi fyrir ofmiklu sprikli. En vegna sjúkraliðanámsins verð ég að taka einhvern áfanga í íþróttum, jæja þetta er útúrdúr frá efninu. Alla vega þá held ég að kennarinn hafi hlegið við lesturinn því svörin vor á þessa leið frá mér: lágmarks þol, styrkur og liðleiki. Bara slæmska í liðamótum. Ég skemmti mér allavegana ágætlega yfir þessu verkefni. 

Jæja nóg af rausi í bili.


Næsta síða »

Um bloggið

Stellan

Höfundur

Stella Jórunn A Levy
Stella Jórunn A Levy
Stellan er forvitin og hefur áhuga á flestu.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ..._005_580441
  • ..._folder_011
  • ..._folder_015
  • ..._folder_009
  • Jenný Dögg táknaði Eldinn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 1148

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband